Horn
Horn eru til í nokkrum gerðum og eru F og B hornin algengust. Einnig eru mikið notuð svokölluð tvöföld horn sem sameinar F og B hornin í eitt hljóðfæri og er skipt á milli þeirra með sérstökum þumalventli.
Hjá Skólahljómsveit Kópavogs er algengast að nemendur byrji á B horni en færi sig yfir á tvöfalt horn þegar lengra er komið í náminu.
Hornin eru mikið notuð í allskonar klassískri tónlist en minna í popp og jazztónlist.