Starfsfólk Skólahljómsveitar Kópavogs lýsir því yfir að hvorki einelti né annað ofbeldi verði liðið í skólanum og unnið verði að því að starfsmenn, nemendur og foreldrar geri sér grein því. Leitað verður allra ráða til að fyrirbyggja einelti og ofbeldi og brugðist verður við þeim málum sem upp kunna að koma án tafar og í góðri samvinnu. Frá skólabyrjun verði nemendum markvisst kennd góð samskipti og nemendur skulu hvattir til að taka afstöðu gegn einelti og ofbeldi í verki með því að bregðast við til hjálpar og láta vita. Gera skal nemendum grein fyrir því að það að skilja útundan og virða aðra ekki viðlits er jafnmikið einelti og að hæðast að eða berja. Þannig verður stuðlað að vellíðan allra í sameiginlegu átaki. Skólahljómsveit Kópavogs skal vera öruggur og góður vinnustaður, þar sem starfið mótast af virðingu og umhyggju fyrir öllum.
Einelti er endurtekið, andlegt eða líkamlegt ofbeldi og/eða félagsleg útskúfun sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þolandann. Einelti á sér stað á milli tveggja einstaklinga eða einstaklings og hóps.
Einelti getur birst í mörgum myndum, það getur verið:
- Líkamlegt, t.d. barsmíðar, spörk og hrindingar.
- Munnlegt, t.d. uppnefni, niðrandi athugasemdir og endurtekin stríðni.Skriflegt, t.d. skilaboð á samfélagsmiðlum, sms-skilaboð, krot og bréfasendingar.
- Óbeint. t.d. baktal, útskúfun eða útilokun úr félagahóp.
- Efnislegt, t.d. eigum barns stolið eða þær eyðilagðar.
- Andlegt, t.d. þegar barnið er þvingað til að gera eitthvað sem gengur gegn réttlætiskennd þess og sjálfsvirðingu.
Kynferðisleg áreitni og allt annað andlegt og líkamlegt ofbeldi fellur hér undir.