Nemendaviðmótið
Nemendur (og foreldrar þeirra) geta séð ýmsar upplýsingar um sitt nám í SpeedAdmin.
Upplýsingar um fasta vikulega tíma gætu litið út á þennan hátt, en útlitið er eitthvað mismunandi eftir því hvort skoðað er í tölvu eða síma/iPad:
Þarna eru upplýsingar um námsbrautir, kennara, stofu og tímasetningar.
Bókanir
Tilfallandi viðburði má finna undir liðnum „Bókanir“. Þar koma fram upplýsingar um tónleika sem eru á döfinni, aukaæfingar, uppbótartíma og annað sem ekki er fast í vikulegri dagskrá. Hver nemandi sér einungis sína viðburði.
Stundataflan
Nemendur geta skoðað stundatöfluna sína. Kennslustundir birtast ekki á frídögum (t.d. á uppstigningardag) og tilfallandi viðburðir koma líka upp á stundatöflu viðkomandi nemenda.
Frídagar
Hægt er að sjá hvaða frídagar eru framundan. Munið líka að á frídögum birtast kennslustundir ekki í stundaskrá nemandans.
Afbókanir
Þegar tími fellur niður er það skráð sem afbókun:
Afbókanir endurspeglast líka í stundaskránni:
Mínar upplýsingar
Nemendur geta skoðað og breyttt heimilsfangi, símanúmeri og/eða netfangi inni í „Mínar upplýsingar“